Lottóleikir » EuroJackpot

EuroJackpot

EuroJackpot er spennandi lottóleikur þar sem Ísland ásamt 16 öðrum Evrópulöndum tekur þátt. Til mikils er að vinna en lágmarksvinningsupphæð í fyrsta vinningsflokki er 10 milljónir evra, eða 1,3 milljarður íslenskra króna í hvert skipti sem dregið er út.

Þátttakandi velur fimm aðaltölur úr talnaröðinni 1-50 og tvær stjörnutölur úr talnaröðinni 1-12.

Útdráttur fer fram á hverjum þriðjudegi og föstudegi, kl. 20.00 á vetrartíma og kl. 19.00 á sumartíma. Sölu lýkur tveimur klukkustundum fyrir útdrátt, eða kl. 18.00 á vetrartíma og 17.00 á sumartíma.

Upptaka af útdrættinum, sem fer fram í Finnlandi, er birt á lotto.is síðar um kvöldið.

Úrslit má nálgast hér á lotto.is og á textavarpinu á síðu 282.

Ein röð í EuroJackpot kostar 300 krónur og allir vinningar eru skattfrjálsir.

Þátttökulönd í EuroJackpot eru eftirfarandi:
Ísland – Danmörk – Svíþjóð – Noregur – Finnland – Eistland – Litháen – Lettland – Þýskaland – Ítalía – Spánn – Holland – Slóvenía – Króatía - Tékkland - Ungverjaland - Pólland

Viltu spila með í EuroJackpot á netinu?

Það er auðvelt að spila með á netinu. Fyrst þarf að nýskrá sig, því næst innskrá sig og að lokum kaupa miða.  Hér fyrir neðan er þetta skýrt út lið fyrir lið.

A) Nýskráning:

Þú byrjar á því að skrá þig inn með rafrænu skilríki og ert síðan leiddur áfram gegnum mjög einfalt skráningarferli. Þegar skráningu er lokið hefur þú fengið notandanafn og lykilorð sem þú notar síðan til að innskrá þig.

B) Innskráning:

Þú slærð inn notandanafn og aðgangsorð og getur þá keypt og skoðað miða.

C) Kaupa miða:

Þú velur fimm aðaltölur og tvær stjörnutölur eða tekur sjálfval. Hægt er að kaupa kerfismiða og þá velur þú 6-10 tölur auk tveggja stjörnutalna.

D) Ógildingar:

Hægt er að ógilda keyptan miða samdægurs og er hann þá bakfærður á spilareikning viðkomandi.

E) Vinningsgreiðslur:

Vinningar að upphæð lægri en 200.000 krónur eru greiddir beint inn á spilareikning viðkomandi. Ef um hærri vinninga er að ræða er haft samband við vinningshafa.

Síðast breytt 15. maí 2023