Lottóleikir » Milljólaleikur Getspár 2020
Jólaleikur Íslenskrar getspár
Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 29. nóvember til klukkan 18:40 þann 26. desember. Dregnir verða út 26 aukavinningar þann 26. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.
Leikurinn hefst sunnudaginn 29. nóvember
Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.
Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 26. desember 2021.
Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár og í textavarpi á síðu 287.
Dregið verður laugardaginn 26. desember 2020.
Athugið:
• Lukkunúmerin gilda aðeins 26. desember 2020.
• Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.
• Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 29. nóvember) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.
• Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.
• Vinningsnúmer eru birt á lotto.is
• Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 26. desember 2021.
Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.300 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.
* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot. Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (4. 11. 18. og 25. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (5. 12. 19. og 26. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (2. 9. 16. og 23. desember).