Lottóleikir » Kerfi í EuroJackpot

Kerfi í EuroJackpot

Hvað er kerfi?

Í stað þess að velja fimm tölur í eina röð er hægt að velja 6-10 tölur í eina röð auk tveggja stjörnutalna og eiga möguleika á að margfalda vinningsupphæðina.

Taflan hér að neðan sýnir hversu margar lottóraðir standa á bak við hvert og eitt kerfi:

6 tölur samsvara kaupum á 6 lottóröðum
7 tölur samsvara kaupum á 21 lottóröð
8 tölur samsvara kaupum á 56 lottóröðum
9 tölur samsvara kaupum á 126 lottóröðum
10 tölur samsvara kaupum á 252 lottóröðum

Athugaðu að kerfi margfalda vinningsupphæðirnar!

Kerfisseðillinn hefur ekki bara þann kost að auðvelda manni að muna tölurnar sínar. Hann margfaldar líka vinningsupphæðirnar þegar „réttu" tölurnar eru dregnar í útdrætti. Hér fyrir neðan eru töflur sem sýna hvernig vinningar margfalda sig á kerfisseðlum en það ræðst af því um hvaða kerfi er að ræða og fjölda réttra talna. Fyrst skulum við taka dæmi, sem þú skalt svo bera saman við viðkomandi töflu.

6 tölur gefa 6 raðir - Verð: 1.800 kr.

Dæmi: Ef þú átt 6 talna kerfisseðil og færð 4 réttar aðaltölur en enga stjörnutölu þá færð þú upphæðina í 7. vinningsflokki tvöfalda og fjórfalda í 10. vinningsflokki .

7 tölur gefa 21 röð - Verð: 6.300 kr.

Dæmi: Ef þú átt 7 talna kerfisseðil og færð 4 réttar aðaltölur en enga stjörnutölu þá færð þú upphæðina í 7. vinningsflokki þrefalda og tólffalda í 10. vinningsflokki.

8 tölur gefa 56 raðir - Verð: 16.800 kr.

Dæmi: Ef þú átt 8 talna kerfisseðil og færð 4 réttar aðaltölur en enga stjörnutölu þá færð þú upphæðina í 7. vinningsflokki fjórfalda og tuttugu og fjórfalda í 10. vinningsflokki .

9 tölur gefa 126 raðir - Verð: 37.800 kr.

Dæmi: Ef þú átt 9 talna kerfisseðil og færð 4 réttar aðaltölur en enga stjörnutölu þá færð þú upphæðina í 7. vinningsflokki fimmfalda og fjörtíufalda í 10. vinningsflokki .

10 tölur gefa 252 raðir - Verð: 75.600 kr.

Dæmi: Ef þú átt 10 talna kerfisseðil og færð 4 réttar aðaltölur en enga stjörnutölu þá færð þú upphæðina í 7. vinningsflokk sexfalda og sextíufalda í 10. vinningsflokki.

Síðast breytt 26. mars 2022