Lottóleikir » Milljólaleikur Getspár 2023

Milljólaleikur Getspár 2023

Jólaleikur Íslenskrar getspár

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 26. nóvember til klukkan 18:40 þann 23. desember.  Dregnir verða út 23 aukavinningar þann 23. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.

Leikurinn hefst sunnudaginn 26. nóvember

Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.

milljólaleikur

Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 23. desember 2024.

Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.

Dregið verður á þorláksmessu, 23. desember 2023.

Athugið:

•    Lukkunúmerin gilda aðeins 23. desember 2023.

•    Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.

•    Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 26. nóvember) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.

•    Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.

•    Vinningsnúmer eru birt á lotto.is

•    Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 23. desember 2024.

Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.

* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum.  Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (1. 8. 15. og 22. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (2. 9. 16. og 23. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (29 nóv. 6. 13. og 20. desember).