Lottóleikir » Lottó 5/40 - Fjórfaldur næst!
Til baka í listaLottó 5/40 - Fjórfaldur næst!
Lottó-fréttir
Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti vikunnar. Tveir skipta með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmlega 323 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miði var í áskrift og hinn var keyptur í Lottó appinu.
Tíu miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Vídómarkaðinum í Kópavogi, Krambúðinni á Flúðum, Jolla í Hafnarfirði, fjórir á heimasíðu okkar lotto.is og þrír voru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 8.264.