Lottóleikir » Lottó -Einn með fyrsta vinning!

Til baka í listaLottó -Einn með fyrsta vinning!
Lottó-fréttir

Stálheppinn miðahafi var einn með fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 36,5 milljónir króna í vinning. Miðinn góði var kerfismiði og var hann keyptur á N1 á Sauðárkróki. En gaman er að segja frá því að vinningsmiðinn góði gaf vinningshafanum einnig fimm af átta bónusvinningum. Þá voru aðrir þrír sem skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rúmar 157 þúsund krónur. Tveir miðanna eru í áskrift og einn miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is

 

Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en þrír miðahafar voru með 2.vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Einn miðinn var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði og tveir miðanna voru keyptir á Lottó appinu.