Lottóleikir » Lottó - 2faldur næst!
Til baka í listaLottó - 2faldur næst!
Lottó-fréttir
Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Fjórir heppnir miðaeigendur skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmar 104 þúsund krónur hver. Einn miði var keyptur á lotto.is, einn miði í appinu og tveir miðar eru í áskrift.
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á N1 á Egilsstöðum. Þrír miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Einn miði var keyptur í Krambúðinni á Akranesi og tveir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 4.474.