Lottóleikir » Fréttir
-
Tvær ungar konur duttu laglega í lukkupottinn
Lottó-fréttir
Tvær ungar konur duttu laglega í lukkupottinn víðfræga þegar tölurnar þeirra voru dregnar út síðasta laugardag en þá var potturinn fjórfaldur, með vinning upp á rúmar 52 milljónir.
Þær eiga það sameiginlegt að vera með tölurnar sínar í áskrift og voru báðar í sumarleyfi með fjölskyldum sínum þegar draumasímtalið kom, önnur á Íslandi en hin á Spáni.
-
Lottó - tveir með 1. vinning!
Lottó-fréttir
Tveir stálheppnir áskrifendur voru með 1. vinninginn í kvöld og hljóta rúmlega 26 skattfrjálsar milljónir á mann! Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fá rúmlega 270 þúsund krónur á mann. Miðarnir góðu voru keyptir í Appinu, N1 Kaupvangi og einn er í áskrift.
Jókerinn gekk ekki út að þessu sinni en átta miðahafar voru með 2. vinning og fá 100 þúsund kall hver. Fjórir miðanna eru í áskrift, þrír voru keyptir á lotto.is og einn í Appinu.
-
Lottó - 4faldur næst!
Lottó-fréttir
Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 663 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is.
Einn var með 1. vinning í Jóker og fær hann 2 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Olís, Álfheimum 49 í Reykjavík. Þá voru sjö miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir á N1, Stórahjalla 2 í Kópavogi, Krambúðinni, Reykjahlíð í Mývatnssveit, Olís, Álfheimum 49 í Reykjavík og fjórir á lotto.is.
-
Lottó - 3faldur næst!
Lottó-fréttir
Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 540 þúsund krónur í sinn hlut.
-
Breytingar á Lottó leiknum
Lottó-fréttir
Eftirfarandi breytingar taka gildi í dag í Lottó leiknum. Í fyrsta lagi fjölgar tölunum um tvær, úr 40 í 42 og verður leikurinn því Lottó 5/42 í stað Lottó 5/40. Í öðru lagi verður einum vinningsflokki bætt við sem er vinningur fyrir 3 réttar tölur og bónustölu og í þriðja lagi hækkar röðin úr 130 krónum í 150 krónur.
Íslensk getspá hóf rekstur á Lottó 5/32 árið 1986. Leiknum var breytt árið 1988 í 5/38 og hélst hann óbreyttur í 20 ár eða til ársins 2008 þegar honum var breytt í Lottó 5/40. Nú, fjórtán árum síðar, breytist leikurinn í 5/42. Breytingarnar fylgja mannfjöldaþróun á Íslandi, árið 1986 var íbúafjöldi 242 þúsund manns en í ár er hann um 376 þúsund manns.
Verð á lottóröð hækkaði síðast árið 2013 og hefur þannig haldist óbreytt í 9 ár.Lottó er leikur allra Íslendinga og sem slíkur þarf hann að vaxa og dafna í takt við fjölgun þjóðarinnar. Þetta veltur nefnilega allt á ákveðnu jafnvægi; að algengustu vinningarnir séu ekki of litlir og að reglulega safnist upp þessir margföldu pottar sem við látum okkur öll dreyma um.
-
Lottó - 2faldur næst!
Lottó-fréttir
Enginn var með fimm réttar tölur og verður potturinn því tvöfaldur í næstu viku. Einn heppinn miðahafi fékk bónusvinninginn og færrúmlega 378 þúsund krónur. Miðinn góði er í áskrift.
Jókerinn gekk ekki heldur út að þessu sinni en þrír áskrifendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur.
-
Getspá/Getraunir fá viðurkenningu vegna ábyrgrar spilunnar
Lottó-fréttir
Á dögunum staðfesti European Lotteries að Getspá/Getraunir uppfylli staðalinn um ábyrga spilun. Viðurkenningin staðfestir að Getspá/Getraunir eru meðal allra fremstu fyrirtækja á þessu sviði í heiminum. Það var Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri Getspár/Getrauna sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækjanna frá Hansjörg Holtgemeier forseta European Lotteries og Arjan van´t Veer framkvæmdastjóra European Lotteries.
-
Lottó - Tveir með 1. vinning
Lottó-fréttir
Tveir heppnir áskrifendur skiptu 1. vinningi á milli sín og fær hvor þeirra rúmar 4,3 milljónir króna. Þá voru þrír áskrifendur með bónusvinninginn og fá þeir rúmar 127 Þúsund kr. hver.
-
Lottó 5/40 - Tveir með fyrsta vinning!
Lottó-fréttir
Tveir heppnir Lottóspilarar skiptu 1. vinningi á milli sín og fær hvor þeirra rúmar 10 milljónir króna. Annar miðinn var keyptur í Hagkaupum í Spönginni, Reykjavík og hinn er í áskrift. Þá voru tveir með bónusvinninginn og fá þeir 240.590 kr. hvor. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði og Olís, Norðlingabraut 7 í Reykjavík.
Einn var með 1. vinning í Jóker og fær hann 2 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Níu miðahafar hlutu annan vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Þrír miðanna eru í áskrift, fjórir voru keyptir á lotto.is, einn hjá N1, Hveragerði og einn í Mosógrilli í Mosfellsbæ -
Lottó - 2faldur næst!
Lottó-fréttir
Enginn var með 1. vinning að þessu sinni og verður potturinn því tvöfaldur í næstu viku. Tveir heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fá rúmlega 200 þúsund krónur á mann, annar þeirra var keyptur í Appinu og hinn á lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 100 þúsund kall. Þrír miðanna eru í áskrift og einn var keyptur á lotto.is