Lottóleikir » EuroJackpot - úrslit 11. júlí
Til baka í listaEuroJackpot - úrslit 11. júlí
EuroJackpot-fréttir
Potturinn í EuroJackpot heldur áfram að stækka þar sem enginn var með allar aðaltölurnar og báðar stjörnutölurnar réttar í útdrætti vikunnar. Tveir voru með annan vinning og fær hvor þeirra rúmar 31milljón króna í vinning. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Þýskalandi. Einn var með þriðja vinning og hlýtur hann rúmar 16 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Þýskalandi. Einn var með fjórar réttar tölur í Jókernum og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur á lotto.is