Lottóleikir » Úrslit í Eurojackpot 11. júní
Til baka í listaÚrslit í Eurojackpot 11. júní
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með allar tölur réttar í útdrætti vikunnar en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hljóta þeir rétt tæpar 145 milljónir króna hvor. Miðarnir voru keyptir í Póllandi og í Finnlandi.
Þrír skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 34 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og sá þriðji var keyptur í Tékklandi.
Þrír miðahafar voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einn miðinn var keyptur á Lottó appinu og sá þriðji var í áskrift.