Lottóleikir » EuroJackpot - úrslit 15. apríl

Til baka í listaEuroJackpot - úrslit 15. apríl
EuroJackpot-fréttir

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld og flyst því vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. Sjö miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 33,1 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, tveir í Svíþjóð og fjórir í Þýskalandi. Tíu miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra tæplega 13,1 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Póllandi, tveir í Slovakíu, og sex í Þýskalandi.

Einn miðahafi var með 2. vinning í Jóker og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is.

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.425.