Lottóleikir » Fékk aftur stóran vinning í EuroJackpot!
Síðastliðinn þriðjudagur bauð upp á ótrúlega atburðarrás í EuroJackpot. Heppinn Íslendingur, karlmaður á sextugsaldri, hafði keypt sér miða í Lottóappinu og landaði hann 3. vinningi og fékk hann rúmar 32 milljónir króna í vinning.
Starfsfólki Íslenskrar getspár fannst andlit vinningshafans eitthvað kunnuglegt þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Getspár í morgun, enda hafði hann komið til þeirra áður, nánar tiltekið fyrir rúmum fjórum árum þegar hann vann rúmlega 130 milljónir króna í Eurojackpot; hæsta 2. vinning sem komið hefur til landsins hingað til.
Það hefur reyndar komið fyrir nokkrum sinnum að heppnir spilarar vinni stóra vinninga oftar en einu sinni.
Talan þrír lék skemmtilegt hlutverk í EuroJackpot að þessu sinni því í ljós kom að það voru þrír vinningshafar sem fengu 3. vinning í gær og var það í þriðja skiptið sem 3. vinningur kemur á þriðjudegi til Íslands eftir að byrjað var að draga tvisvar í viku!