Lottóleikir » Úrslit í EuroJackpot 7.júlí 2023

Til baka í listaÚrslit í EuroJackpot 7.júlí 2023
EuroJackpot-fréttir

Enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en þrír heppnir miðahafar voru með 2.vinning og fær hver þeirra rétt tæpar 90 milljónir króna í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi. Þá skiptu níu miðahafar með sér 3.vinningi og hlýtur hver þeirra tæpar 17 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Póllandi og fimm í Þýskalandi.

Þrír voru með 2.vinning í Jóker kvöldsins og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á vef okkar lotto.is, appinu og einn miðanna er í áskrift.