Lottóleikir » Fréttir
-
EuroJackpot, 12. ágúst - 1. vinningur til Póllands
EuroJackpot-fréttir
Heppinn Pólverji var einn með 1. vinning og fær hann tæplega 6,4 milljarða króna í sinn hlut. Fjórir miðaeigendur skiptu 2. vinningi á milli sín og hlýtur hver þeirra rúmar 66 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Finnlandi. Þá voru fimm með 3. vinning og fá þeir rétt tæpar 30 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Tékklandi og 3 í Þýskalandi.
Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur. Annar miðinn var keyptur hjá Prins Póló, Þönglabakka 6 í Reykjavík en hinn var keyptur í appinu.Fjöldi vinningsraða á Íslandi var 3.190
-
Úrslit í EuroJackpot 9. ágúst
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinninginn að þessu sinni en einn heppinn miðahafi í Þýskalandi var með 2. vinning og fær rúmlega 137 milljónir. Þá voru tveir sem skiptu með sér 3. vinningnum og hljóta tæpar 39 milljónir hvor, en miðarnir góðu voru keyptir í Danmörku og Finnlandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en þrír miðahafar voru með 2. vinning og fá 100 þúsund krónur á mann. Miðarnir voru keyptir í Appinu, á lotto.is og einn er í áskrift.
-
EuroJackpot - úrslit 5. ágúst
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning að þessu sinni, en sjö miðaeigendur voru með 2. vinning og fá tæplega 36 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir á Ítalíu, Finnlandi, 2 í Þýskalandi og 3 í Póllandi.
-
EuroJackpot - úrslit 2. ágúst
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning að þessu sinni, en tveir miðaeigendur voru með 2. vinning og fá tæplega 65 milljónir hvor. Annar miðinn var keyptur á Spáni og hinn í Þýskalandi. Fimm skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 14,6 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Slóvakíu, Svíþjóð, Þýskalandi, Póllandi og Finnlandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jókernum.
-
Úrslit í EuroJackpot 29. júlí
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinninginn í útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá tæplega 117 milljónir á mann. Einn miðinn var keyptur í Danmörku og hinn í Króatíu. Sjö miðahafar skiptu með sér 3. vinningnum og fá þeir tæpar 19 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Slóveníu, Svíþjóð, þrír í Þýskalandi og tveir í Finnlandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jókernum að þessu sinni.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með allar aðaltölur og báðar stjörnutölurnar réttar og verður potturinn því 2faldur á föstudaginn. Fimm miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rétt tæplega 26,3 milljónir, einn miðinn var keyptur á Ítalíu en allir hinir fjórir í Þýskalandi. Þá skiptu þrír með sér 3. vinningi og voru allir miðarnir keyptir í Þýskalandi, upphæð á mann nam 24,7 milljónum króna.
Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund kall, annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur á lotto.is.
-
EuroJackpot - sögulegur 1. vinningur til Danmerkur
EuroJackpot-fréttir
Lífið breyttist svo sannarlega þennan föstudaginn hjá miðahafa í Danmörku sem var aleinn með 1. vinninginn! Potturinn í kvöld var sá allra hæsti frá upphafi og hlýtur sigurvegarinn sögulega 16,6 milljarða. Átta skiptu með sér 2. vinningnum og fá hvorki meira né minna en 415 milljónir hver. Sex miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Noregi og einn í Ungverjalandi. Þá voru alls átján miðahafar með 3. vinninginn og hlýtur hver þeirra tæpar 18 milljónir. Miðarnir voru keyptir í Slóveníu, Ungverjalandi, Ítalíu, þrír í Danmörku og tólf í Þýskalandi.
Einn Íslendingur var meðal þeirra sem voru með 4. vinninginn og fær sá heppni rúmlega 263 þúsund krónur. Miðinn góði var keyptur í Kvikk á Vesturlandsvegi.
Jókerinn gekk ekki út í kvöld en einn var með 2. vinning og fær 100 þúsund krónur í vasann. Miðinn góði er í áskrift.
-
Úrslit í EuroJackpot 19. júlí
EuroJackpot-fréttir
Ekki gekk potturinn út að þessu sinni en fjórir miðahafar nældu sér í 2. vinning og fá þeir rúmlega 123 milljónir á mann. Allir voru þeir keyptir í Þýskalandi. Þá voru níu miðahafar með 3. vinninginn og fá rúmlega 21 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Hollandi, Noregi, þrír í Finnlandi og þrír í Þýskalandi.
Jókerinn gekk ekki út en þrír heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fá 100 þúsund kall á mann. Miðarnir voru keyptir í Appinu, á lotto.is og einn er í áskrift.
-
Úrslit í EuroJackpot 15. júlí 2022
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning að þessu sinni en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fá tæpar 20,6 milljónir á mann. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Póllandi og tveir í Hollandi. Þá voru alls 12 miðahafar með 3. vinninginn og fær hver þeirra rúmlega 468 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Litháen, Tékklandi, Slóveníu, Finnlandi og sjö í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum í kvöld, en tveir áskrifendur voru með 2. vinning og hljóta 100 þúsund krónur á mann.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. í þessum þriðjudagsútdrætti en 5 skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 47 milljónir. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi en hinir tveir í Tékklandi og Póllandi. Tveir voru síðan með 3. vinning og hljóta þeir einnig rúmlega 47 milljónir, annar miðinn var keyptur í Króatíu en hinn í Noregi.