Lottóleikir » Fréttir

  • EuroJackpot - úrslit 13. september
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1. vinning að þessu sinni, en miðaeigandi í Þýskalandi var einn með 2. vinning og fær hann rúmlega 106 milljónir króna. Þá var einn með 3. vinning og fær hann rétt tæpar 60 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Þýskalandi.
    Enginn var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð, en einn var með 2. vinning og fær hann 100 þúsund krónur. Miðinn var keyptur í appinu.

    Fjöldi vinningshafa á Íslandi var 1.497

  • EuroJackpot - úrslit 9. september - 1. vinningur til Spánar!
    EuroJackpot-fréttir

    Heppinn Spánverji var einn með 1. vinning og hlýtur rúmlega 2,8 milljarða! Svíi og Tékki skiptu 2. vinningi á milli sín og fær hvor þeirra rétt tæpar 113 milljónir króna. Þrír voru með 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 42,4 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Finnlandi

    Fjöldi vinningshafa á Íslandi var 2.985

  • Enginn með 1.vinning í EuroJackpot
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1.vinning í þessum útdrætti en tveir deildu með sér 2.vinningi og fær hvor þeirra rúmlega 58,3 milljónir. Annar miðinn var keyptur í Þýskalandi en hinn í Slóveníu. Einn var með 3.vinning og hlaut hann rúmlega 58,3 milljónir, miðinn var keyptur í Tékklandi.

  • EuroJackpot - enginn með 1. vinning
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með allar tölur réttar í útdrættinum að þessu sinni en fimm miðahafar deildu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 43 milljónir í sinn hlut.  Miðarnir voru keyptir í eftirtöldum löndum; Svíþjóð, Ungverjalandi og þrír í Þýskalandi.  Sextán miðahafar skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra 7,6 milljónir, sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi en hinir í eftirtöldum löndum: Danmörku, tveir í Hollandi, tveir í Noregi, Ítalíu, Svíþjóð, Slóvakíu og Finnlandi.

    Enginn var með 1. vinning í Jóker en tveir voru með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund kall í vasann hvor, annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn er í áskrift.

  • EuroJackpot - úrslit 30. ágúst
    EuroJackpot-fréttir

    Heppnin var með miðahafa í Wiesbaden í Þýskalandi í kvöld sem var aleinn með 1. vinning og hlýtur rúmlega 2,8 milljarða! Einn Dani var með 2. vinning og fær hann rúmar 116 milljónir króna. Sex skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 10,9 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir á Spánni, 2 í Þýskalandi og 3 í Póllandi.

  • Úrslit í EuroJackpot 26. ágúst
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1. vinning að þessu sinni en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og hljóta rúmar 55 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Finnlandi og tveir í Þýskalandi. Þá voru alls fjórtán miðahafar með 3. vinninginn og hlýtur hver og einn þeirra tæpar 9 milljónir. Miðarnir voru keyptir í Króatíu, Tékklandi, Finnlandi, tveir á Spáni og níu í Þýskalandi.

    Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum í kvöld en þrír voru með 2. vinninginn og fá 100 þúsund kall á mann. Tveir miðanna voru keyptir í Appinu sá þriðji í Mini Market á Smiðjuvegi.

  • Úrslit í EuroJackpot 23. ágúst
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1. vinning að þessu sinni og verður potturinn því tvöfaldur í næsta útdrætti. Fjórir miðahafar voru með 2. vinning og hljóta rúmlega 27,7 milljónir hver, en miðarnir voru keyptir í Danmörku, Slóveníu, Svíþjóð og Póllandi. Þá voru tveir miðahafar í Þýskalandi með 3. vinninginn og fá þeir einnig rúmlega 27,7 milljónir á mann.

    Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fá 100 þúsund kall á mann. Einn miðanna var keyptur á lotto.is en hinn er í áskift.

  • EuroJackpot - 1. vinningur til Danmerkur
    EuroJackpot-fréttir

    Heppnin var með miðahafa í Danmörku í kvöld sem var aleinn með 1. vinninginn og hlýtur rúmlega 2,3 milljarða! Fjórir skiptu með sér 2. vinningnum og fær hver þeirra rúmlega 57 milljónir í vasann, en allir voru þeir keyptir í Þýskalandi. Þá voru sex miðahafar með 3. vinninginn og fær hver og einn þeirra rúmlega 21 milljón. Miðarnir voru keyptir á Spáni, Ungverjalandi, tveir í Noregi og tveir í Þýskalandi.

    Enginn var með 1. vinninginn í Jókernum í kvöld en einn heppinn áskrifandi var með 2. vinning og fær 100 þúsund krónur í vasann.

  • EuroJackpot - úrslit 16. ágúst - Tvöfaldur næst!
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1. vinning að þessu sinni, en miðaeigandi í Þýskalandi var einn með 2. vinning og fær hann rúmar 111 milljónir króna. Fimm skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 12,5 milljónir króna. Einn miðinn var keyptur í Svíþjóð en hinir fjórir í Þýskalandi.
    Fyrsti vinningur gekk ekki út í Jókernum, en áskrifandi var einn með 2. vinning og fær hann 100.000 kr. í sinn hlut.

  • EuroJackpot, 12. ágúst - 1. vinningur til Póllands
    EuroJackpot-fréttir

    Heppinn Pólverji var einn með 1. vinning og fær hann tæplega 6,4 milljarða króna í sinn hlut. Fjórir miðaeigendur skiptu 2. vinningi á milli sín og hlýtur hver þeirra rúmar 66 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Finnlandi. Þá voru fimm með 3. vinning og fá þeir rétt tæpar 30 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Tékklandi og 3 í Þýskalandi.
    Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur. Annar miðinn var keyptur hjá Prins Póló, Þönglabakka 6 í Reykjavík en hinn var keyptur í appinu.

     

    Fjöldi vinningsraða á Íslandi var 3.190