Lottóleikir » Fréttir
-
EuroJackpot - 1. vinningur til Þýskalands
EuroJackpot-fréttir
Miðaeigandi í Münster í Þýskalandi hafði heppnina í sínu liði en hann var einn með 1. vinning sem hljóðaði að þessu sinni upp á tæpa 5,2 milljarða. Þrír skiptu með sér 3. vinningi, fær hver þeirra 57,7 milljónir króna, tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Finnlandi. Þá voru átta miðahafar sem skiptu með sér 3. vinningi, fær hver þeirra 12,2 milljónir. Þeir miðar voru keyptir í eftirtöldum löndum; Hollandi, Króatíu, Ítalíu, Svíþjóð, tveir í Þýskalandi og tveir í Ungverjalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en einn var með 2. vinning og fær hann 100 þúsund í vinning, miðinn var keyptur í N1 við Hörgárbraut á Akureyri.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en tveir heppnir miðahafar í Danmörku og Noregi skiptu með sér 2. vinning og fær hvor þeirra rúmar 127 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru þrír með 3. vinning og hlýtur hver þeirra rétt rúmar 47,8 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Slóvakíu og Þýskalandi.
Þá var það aldeilis heppinn áskrifandi sem nældi sér í 2. milljónir, en allar tölurnar hans komu í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins.
-
EuroJackpot - úrslit 24. október
EuroJackpot-fréttir
Ekki gekk 1. vinningur út að þessu sinni en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hvor þeirra rúmlega 78 milljónir, miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Þýskalandi. Það var einn vinningshafi með 3. vinning og fær hann rúmar 78 milljónir, miðinn var keyptur í Þýskalandi.
-
EuroJackpot - úrslit 20. október
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en átta heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 29,3 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Póllandi og sex í Þýskalandi.
-
Úrslit í EuroJackpot 17.október 2023
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en þrír heppnir miðahafar í Þýskalandi skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 47 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru tveir með 3. vinning og hlýtur hvor þeirra rétt rúmar 40 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Þýskalandi.
Jókerinn gekk ekki út í kvöld en tveir voru með 2. vinning og fá þeir 100.000 krónur í vasann hvor. Miðarnir voru keyptir í Vídeomarkaðnum í Hamraborg og í Lottó appinu
-
1. Vinningur til Þýskalands!
EuroJackpot-fréttir
Heppinn miðahafi í Þýskalandi er tæpum 8 milljörðum króna ríkari eftir að hafa verið einn með 1.vinning í útdrætti kvöldsins!
Sex miðahafar skiptu með sér 2.vinningi og fær hver þeirra rúmar 52,5 milljónir króna í sinn hlut. Fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Danmörku. Þá skiptu tólf miðahafar með sér 3. vinningi og fær hver þeirra tæpar 15 milljónir króna. Sex miðar voru keyptir í Þýskalandi, þrír í Svíþjóð og hinir í Danmörku, Króatíu og Ungverjalandi.Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2.vinning og fær hann 100.000 krónur í vasann. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í EuroJackpott útdrætti kvöldsins. Heppinn Þjóðverji var einn með 2. vinning og fær hann rúmar 176 milljónir í sinn hlut. Sjö skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 14,2 milljónir, þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn á Spáni, einn í Svíþjóð, einn í Króatíu og einn í Slóveníu.
Einn heppinn miðaeigandi var með 2. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins og fær hann 100 þúsund krónur í sinn vasa. Miðinn var keyptur í Lottó Appinu.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins, en tveir heppnir miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hvor þeirra rúmar 129,5 milljónir króna í sinn hlut. Annar miðanna var keyptur í Þýskalandi en hinn á Spáni. Þá skiptu fjórir með sér 3. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 36,5 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Tékklandi, Danmörku og í Þýskalandi.
Enginn var með 1. né 2. vinning í Jókernum í kvöld. -
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Ekki gekk 1. vinningur út að þessu sinni en þrír miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 51,7 milljónir, tveir miðanna voru keyptir í Þýskaland og einn á Ítalíu. Það voru einnig þrír vinningshafar með 3. vinning og fær hver um sig rúmar 29 milljónir, miðarnir voru keyptir á Spáni, í Litháen og í Þýskalandi.
Einn var með 2. vinning í Jóker og fær hann 100 þúsund kall, miðinn var keyptur á lotto.is.
-
Úrslit í EuroJackpot 29. september
EuroJackpot-fréttir
Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en þrír miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rétt tæpar 129 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi og Spáni. Þá voru sjö miðahafar sem skiptu með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmar 19 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku, einn í Noregi og einn í Finnlandi.
Tveir voru með 2. vinning í Jókernum í kvöld og fær hvor þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir á heimasíðu okkar, lotto.is