Lottóleikir » Fréttir

  • EuroJackpot - úrslit 21. febrúar
    EuroJackpot-fréttir

    Stálheppinn miðaeigandi í Danmörku var einn með fyrsta vinning og fær hann rúmlega 1,5 milljarð í sinn hlut. Þrír skiptu 2. vinningi á milli sín og fær hver þeirra rúmar 47 milljónir króna. Tveir miðann voru keyptir í Þýskalandi og einn í Noregi. Þá voru 4 með 3. vinning hlýtur hver þeirra  rétt tæpar 20 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Spáni og tveir í Þýskalandi.
    Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins, en tveir fengu 2. vinning og fær hvor þeirra 100.000  krónur. Annar miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinn á lotto.is

  • Úrslit í EuroJackpot 17. febrúar - 1. vinningur til Finnlands
    EuroJackpot-fréttir

    Heppinn Finni datt aldeilis í lukkupottinn því hann var einn með 1. vinning og fær rétt tæpa 6,2 milljarða í sinn hlut.  Einn miðaeigandi hlaut 2. vinning og fær rúmlega  463 milljónir króna, en miðinn var keyptur í Þýskalandi. Þá voru fimm með 3. vinning hlýtur hver þeirra rúmar 32,8 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Noregi og einn í Svíþjóð.

    Þrír voru með 4 réttar Jókertölur í réttri röð og fá fyrir það 100.000 kr. hver. Miðarnir voru keyptir í Skalla, Hraunbæ 102 í Reykjavík,  á lotto.is og í appinu.

  • Fékk aftur stóran vinning í EuroJackpot!
    EuroJackpot-fréttir

    Síðastliðinn þriðjudagur bauð upp á ótrúlega atburðarrás í EuroJackpot. Heppinn Íslendingur, karlmaður á sextugsaldri, hafði keypt sér miða í Lottóappinu og landaði hann 3. vinningi og fékk hann rúmar 32 milljónir króna í vinning. 
    Starfsfólki Íslenskrar getspár fannst andlit vinningshafans eitthvað kunnuglegt þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Getspár í morgun, enda hafði hann komið til þeirra áður, nánar tiltekið fyrir rúmum fjórum árum þegar hann vann rúmlega 130 milljónir króna í Eurojackpot; hæsta 2. vinning sem komið hefur til landsins hingað til. 
    Það hefur reyndar komið fyrir nokkrum sinnum að heppnir spilarar vinni stóra vinninga oftar en einu sinni.

    Talan þrír lék skemmtilegt hlutverk í EuroJackpot að þessu sinni því í ljós kom að það voru þrír vinningshafar sem fengu 3. vinning í gær og var það í þriðja skiptið sem 3. vinningur  kemur á þriðjudegi til Íslands eftir að byrjað var að draga tvisvar í viku! 

  • EuroJackpot - 3. vinningur til Íslands
    EuroJackpot-fréttir

    Það hljóp heldur betur á snærið hjá miðaeiganda á Íslandi sem verslaði sér miða í Lottóappinu en hann var einn af þremur sem skiptu með sér 3. vinningi.  Fær hver þeirra rúmlega 32,1 milljón í vinning.  Hinir tveir miðarnir voru báðir keyptir í Þýskalandi, annar í Stuttgart en hinn í Münster.  Hins vegar gengu hvorki 1. né 2. vinningur út að þessu sinni og stefnir 1. vinningur í tæpa 6 milljarða í útdrættinum á næsta föstudag.    Jóker var ekki að gefa mikið af sér að þessu sinni en hvorki 1. né 2. vinningur gengu út.

  • EuroJackpot - enginn með 1. vinning
    EuroJackpot-fréttir

    Tveir skiptu með sér 2. vinningi að þessu sinni, annar í Svíþjóð og hinn í Þýskalandi og fær hvor þeirra rúmlega 135 milljónir í vinning.  Það voru einnig tveir um 3. vinninginn og fær hvor rúmlega 76 milljónir, annar í Danmörku en hinn í Þýskalandi. 

    Enginn var með 1. vinning, hvorki í EuroJackpot né Jóker en einn var með 2. vinning í Jóker og fær hann 100 þúsund kall, miðinn var keyptur í N1 í Mosfellsbæ.

  • Úrslit í EuroJackpot 7. febrúar 2023
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en þrír heppnir miðahafar skiptu með sér 2.vinning og fær hver þeirra rúmar 50,5 milljónir í vasann. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Tveir miðahafar voru með 3.vinning og fá þeir tæpar 43 milljónir hvor en miðarnir voru keyptir í Noregi og Slóvakíu.

    Enginn var með allar tölur réttar og réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2.vinning og fær fyrir það 100.000 krónur. Miðann keypti hann í Olís við Tryggvagötu, Akureyri.

  • Úrslit Í EuroJackpot 3.febrúar 2023
    EuroJackpot-fréttir

    Enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins en heppinn miðahafi í Þýskalandi var með 2.vinning og fær hann rúmar 272,5 milljónir í sinn hlut. Ellefu miðahafar skiptu með sér 3.vinning og hlýtur hver þeirra rétt tæpar 14 milljónir. Sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi en hinir í Hollandi, Slóvakíu, Spáni og Svíþjóð.
    Heppinn áskrifandi var með 1.vinning í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna. Þá voru þrír miðahafar með 2.vinning og fá þeir 100.000 krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Bensínsölunni Klettur, Vestmannaeyjum, Lottó appinu og einn miðanna er í áskrift.

     

  • EuroJackpot - úrslit 31. janúar
    EuroJackpot-fréttir

    Einn stálheppinn spilari í Bremen í Þýskalandi var með 1.vinning og fær hann rúma 16,4 milljarða króna í vinning. Þrír voru með 2.vinning og hlýtur hver þeirra rúma 116 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Tékklandi og Ungverjalandi.

  • EuroJackpot - enginn með 1. vinning
    EuroJackpot-fréttir

    Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot, en sex skiptu 2. vinningi á milli sín og hlýtur hver þeirra rúmar 72 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Þá voru níu með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 27 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, Spáni, Ítalíu, Slovakíu og Finnlandi.

    Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en einn heppin vinningshafi var með 2. vinning og fær því 100 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á Lottó appinu.

  • Enginn með 1.vinning í EuroJackpot
    EuroJackpot-fréttir

    Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot, en þrír skiptu 2. vinningi á milli sín og hlýtur hver þeirra rétt rúmar 82 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Danmörku og Noregi. Þá voru sex með 3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 23 milljónir króna. Fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi en sá sjötti á Spáni.

    Það dróg heldur betur til tíðinda í Jóker kvöldsins en heppinn viðskiptavinur var með 1. vinning í Jóker og fær fyrir það 2 milljónir króna. Miðinn var keyptur á Lottóappinu. Enginn var með 2. vinning.