Lottóleikir » Fréttir
-
Úrslit í EuroJackpot 3. mars
EuroJackpot-fréttir
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni en tveir miðahafar skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hvor þeirra rétt rúmar 73 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir á Spáni og í Svíþjóð.
Enginn var með 1.vinning í Jóker útdrætti kvöldsins, en sjö miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Drekanum í Hafnarfirði, Plúsmarkaðnum í Hátúni 10a í Reykjavík, Hagkaup Furuvöllum á Akureyri, tveir miðanna eru í áskrift, einn miði var keyptur á Lottó appinu og einn miði á heimasíðu okkar, lotto.is.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en einn var með heppnina með sér er varðar 2. vinning og fær hann tæpar 145 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur á Spáni. Eins voru tveir aðrir með heppnina með sér í kvöld sem nældu sér í 3. vinning og fá þeir rúmar 40 milljónir hvor. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi og Svíþjóð.
Eins var enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en tveir heppnir miðaeigendur nældu sér í 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaup í Hafnarfirði og Vitanum í Reykjavík.
-
Enginn með 1.vinning í EuroJackpot
EuroJackpot-fréttir
1. vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins. Átta skiptu 2. vinning á milli sín og fær hver þeirra rúmar 30 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. 3. vinningur skiptist á milli níu miðahafa og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Danmörku og Slóveníu.
Enginn var með 1. né 2. vinning í Jóker kvöldsins -
EuroJackpot - úrslit 21. febrúar
EuroJackpot-fréttir
Stálheppinn miðaeigandi í Danmörku var einn með fyrsta vinning og fær hann rúmlega 1,5 milljarð í sinn hlut. Þrír skiptu 2. vinningi á milli sín og fær hver þeirra rúmar 47 milljónir króna. Tveir miðann voru keyptir í Þýskalandi og einn í Noregi. Þá voru 4 með 3. vinning hlýtur hver þeirra rétt tæpar 20 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Spáni og tveir í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins, en tveir fengu 2. vinning og fær hvor þeirra 100.000 krónur. Annar miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinn á lotto.is -
Úrslit í EuroJackpot 17. febrúar - 1. vinningur til Finnlands
EuroJackpot-fréttir
Heppinn Finni datt aldeilis í lukkupottinn því hann var einn með 1. vinning og fær rétt tæpa 6,2 milljarða í sinn hlut. Einn miðaeigandi hlaut 2. vinning og fær rúmlega 463 milljónir króna, en miðinn var keyptur í Þýskalandi. Þá voru fimm með 3. vinning hlýtur hver þeirra rúmar 32,8 milljónir króna. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Noregi og einn í Svíþjóð.
Þrír voru með 4 réttar Jókertölur í réttri röð og fá fyrir það 100.000 kr. hver. Miðarnir voru keyptir í Skalla, Hraunbæ 102 í Reykjavík, á lotto.is og í appinu. -
Fékk aftur stóran vinning í EuroJackpot!
EuroJackpot-fréttir
Síðastliðinn þriðjudagur bauð upp á ótrúlega atburðarrás í EuroJackpot. Heppinn Íslendingur, karlmaður á sextugsaldri, hafði keypt sér miða í Lottóappinu og landaði hann 3. vinningi og fékk hann rúmar 32 milljónir króna í vinning.
Starfsfólki Íslenskrar getspár fannst andlit vinningshafans eitthvað kunnuglegt þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Getspár í morgun, enda hafði hann komið til þeirra áður, nánar tiltekið fyrir rúmum fjórum árum þegar hann vann rúmlega 130 milljónir króna í Eurojackpot; hæsta 2. vinning sem komið hefur til landsins hingað til.
Það hefur reyndar komið fyrir nokkrum sinnum að heppnir spilarar vinni stóra vinninga oftar en einu sinni.Talan þrír lék skemmtilegt hlutverk í EuroJackpot að þessu sinni því í ljós kom að það voru þrír vinningshafar sem fengu 3. vinning í gær og var það í þriðja skiptið sem 3. vinningur kemur á þriðjudegi til Íslands eftir að byrjað var að draga tvisvar í viku!
-
EuroJackpot - 3. vinningur til Íslands
EuroJackpot-fréttir
Það hljóp heldur betur á snærið hjá miðaeiganda á Íslandi sem verslaði sér miða í Lottóappinu en hann var einn af þremur sem skiptu með sér 3. vinningi. Fær hver þeirra rúmlega 32,1 milljón í vinning. Hinir tveir miðarnir voru báðir keyptir í Þýskalandi, annar í Stuttgart en hinn í Münster. Hins vegar gengu hvorki 1. né 2. vinningur út að þessu sinni og stefnir 1. vinningur í tæpa 6 milljarða í útdrættinum á næsta föstudag. Jóker var ekki að gefa mikið af sér að þessu sinni en hvorki 1. né 2. vinningur gengu út.
-
EuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Tveir skiptu með sér 2. vinningi að þessu sinni, annar í Svíþjóð og hinn í Þýskalandi og fær hvor þeirra rúmlega 135 milljónir í vinning. Það voru einnig tveir um 3. vinninginn og fær hvor rúmlega 76 milljónir, annar í Danmörku en hinn í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning, hvorki í EuroJackpot né Jóker en einn var með 2. vinning í Jóker og fær hann 100 þúsund kall, miðinn var keyptur í N1 í Mosfellsbæ.
-
Úrslit í EuroJackpot 7. febrúar 2023
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en þrír heppnir miðahafar skiptu með sér 2.vinning og fær hver þeirra rúmar 50,5 milljónir í vasann. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Tveir miðahafar voru með 3.vinning og fá þeir tæpar 43 milljónir hvor en miðarnir voru keyptir í Noregi og Slóvakíu.
Enginn var með allar tölur réttar og réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2.vinning og fær fyrir það 100.000 krónur. Miðann keypti hann í Olís við Tryggvagötu, Akureyri.
-
Úrslit Í EuroJackpot 3.febrúar 2023
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins en heppinn miðahafi í Þýskalandi var með 2.vinning og fær hann rúmar 272,5 milljónir í sinn hlut. Ellefu miðahafar skiptu með sér 3.vinning og hlýtur hver þeirra rétt tæpar 14 milljónir. Sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi en hinir í Hollandi, Slóvakíu, Spáni og Svíþjóð.
Heppinn áskrifandi var með 1.vinning í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna. Þá voru þrír miðahafar með 2.vinning og fá þeir 100.000 krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Bensínsölunni Klettur, Vestmannaeyjum, Lottó appinu og einn miðanna er í áskrift.