Getraunaleikir » Tippari vann 7.5 milljónir á Enska getraunaseðilinn
Til baka í listaTippari vann 7.5 milljónir á Enska getraunaseðilinn
Getrauna-fréttir
Tipparar hafa verið á skotskónum undanfarnar vikur í getraunum og var síðasta vika engin undantekning. Einn íslenskur tippari vann rúmar 7.5 milljónir á Enska getraunaseðilinn á laugardag. Tipparinn valdi getraunakerfi þar sem hann notaði 5 tvítryggingar og 5 þrítryggingar og var með eitt merki á þrem leikjum. Alls keypti hann 288 raðir sem kosta 4.320 krónur. Getraunaseðillinn var keyptur á sölustaðnum Vitanum á Laugavegi.