Getraunaleikir » Þrír með 13 rétta og rúmar 2 milljónir

Til baka í listaÞrír með 13 rétta og rúmar 2 milljónir
Getrauna-fréttir

Þrír aðilar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fengu þeir allir rúmar 2 milljónir í sinn hlut.
Stuðningsmaður Njarðvíkur fékk 13 rétta eftir að hafa keypt seðil með 3 tvítryggðum og 2 þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.080 krónur.
Stuðningsmaður Dalvíkur fékk 13 rétta á seðil með 7 tvítryggingum sem kostaði 1.920 krónur og hópur í félagakerfi Bridgesambandsins fékk 13 rétta á kerfisseðil sem innihélt 1.529 raðir og kostaði 22.935 krónur.