Getraunaleikir » Víkingur með 13 rétta
Til baka í listaVíkingur með 13 rétta
Getrauna-fréttir
Einn tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum í getraunum og fær hann 1,2 milljónir króna í vinning.
Tipparinn sem er stuðningsmaður Víkings í Reykjavík keypti miðann á sölustað í Reykjavík og notaði sparnaðarkerfið 7-2-486. Þannig þrítryggði hann 7 leiki, tvítryggði 2 leiki og fjórir leikir voru með einu merki. Kerfið gekk upp og niðurstaðan 13 réttir. Alls kostaði miðinn 6.318 krónur.