Getraunaleikir » Fréttir

  • Húskerfið sló í gegn
    Getrauna-fréttir

    Húskerfið hjá Víkingum fékk 13 rétta og skilaði tæplega 2.8 milljónum króna í vinninga. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem húskerfið gefur 13 rétta, en í desember fengu Víkingar 4.6 milljónir í vinning. Getraunastarfið hjá Víkingum hefur verið afar öflugt og ljóst að það skilar líka vinningum til baka.  

  • Vann 4,5 milljónir á Sunnudagsseðlinum
    Getrauna-fréttir

    Glúrinn tippari vann um 4,5 milljónir króna á Sunnudagsseðlinum þegar hann fékk 13 rétta, einn Íslendinga. Tipparinn notaði sparnaðarkerfið S 7-2-486 sem er nokkuð sterkt kerfi. Sett eru þrjú merki á sjö leiki og tvö merki á tvo leiki og eitt merki á fjóra leiki. Gangi kerfið upp eru 5,5% líkur á 13 réttum.

  • Unnu 8.3 milljónir í Getraunum
    Getrauna-fréttir

    Það kom nöskum tippara heldur betur á óvart þegar starfsmaður Getrauna hringdi í hann á mánudagsmorgun og óskaði innilega til hamingju með vinning upp á 8.3 skattfrjálsar milljónir. Tipparinn hafði ekki hugmynd um vinninginn, hann hafði fylgst aðeins með seðlinum á laugardeginum og sýndist hann stefna í 11 rétta en mörk á lokamínútum í leikjum hjá Stoke og Leeds tryggðu honum 13 rétta. Tipparinn styður KR og tippar reglulega með misjöfnum árangri en vildi meina að stundum væri gott að vera klunni.

  • Þrír með 13 rétta á Miðvikudagsseðli
    Getrauna-fréttir

    Það voru þrír tipparar sem voru með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum á Íslandi. Fá þeir hver í sinn hlut tæpar 700.000 krónur. Vinningsupphæðin fyrir 10 rétta náði ekki lágmarksupphæð og flyst því yfir á 13 rétta á sunnudagsseðlinum og má búast við að risapotturinn verði nálægt 45 milljónum króna fyrir 13 rétta.

  • Leikjum frestað á Laugardagsseðli
    Getrauna-fréttir

    Vegna þess að Svíþjóð spilar við England um brons á laugardaginn kl. 15:00 voru tveir leikir í sænsku úrvalsdeildinni færðir fram um klukkustund. Við það detta þeir út af seðlinum og verður kastað upp á úrslit þeirra.
    Leikirnir sem um ræðir eru númer 2 Kalmar FF-AIK og leikur númer 3 Sirius-Östersund.

  • 9,5 milljónir fyrir 13 rétta
    Getrauna-fréttir

    Það var glúrinn tippari sem var með alla leikina rétta á Enska getraunaseðlinum á laugardaginn. Tipparinn tvítryggði átta leiki og setti eitt merki við fimm leiki. Alls notaði hann því 256 raðir sem kostuðu 3.328 krónur.  Heildarvinningar sem tipparinn fær í sinn hlut eru rúmlega 9,5 milljónir króna. Tipparinn keypti miðann í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. 

  • Everton - Liverpool
    Getrauna-fréttir

    Um helgina verða borgarslagir af bestu gerð í ensku úrvalsdeildinni. Á laugardag mætast Tottenham – Arsenal. Þessi félög hafa marga hildi háð og eru í baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu. Á sunnudag mætast svo Everton – Liverpool. Rígurinn hefur verið mikill milli liðanna og ljóst að leikmönnum og áhangendum Everton þætti ekki leiðinlegt að leggja stein í götu Liverpool í átt að fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 29 ár.

  • Vann tæpar 2.3 milljónir á Sunnudagsseðilinn
    Getrauna-fréttir

    Glúrinn tippari var með alla leikina þrettán rétta á Sunnudagsseðlinum í getraunum og fékk hann tæpar 2.4 milljónir í vinning. Tipparinn tippaði á sparnaðarkerfi þar sem hann var með 7 þrítryggða leiki og 6 leiki með einu merki. Kerfið heitir S 7-0-36 og kostar 468 krónur. Það þarf því ekki að tippa á stórt kerfi til að vinna góða vinninga í getraunum. Tipparinn styður Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík. Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn og landsmönnum öllum gleðilegs árs og farsældar á nýju ári. 

  • Þrír unnu 110 milljónir í Getraunum
    Getrauna-fréttir

    Það var risastór pottur í Getraunum í dag eða rúmlegar 330 milljónir króna í vinning fyrir 13 rétta. Þrír getspakir Svíar skiptu á milli sín pottinum og fær hver um sig rúmlega 110 milljónir íslenskra króna. Þrír Íslendingar voru ekki langt frá stóra vinningnum en giskuðu á 12 leiki rétta og fá þeir um 450 þúsund krónur í vinning, þessir þrír Íslendingar styðja Víking Reykjavík, ÍR og Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík.

  • Getraunaseðlar um jól og áramót
    Getrauna-fréttir

    Það er nóg um að vera í boltanum um jól og áramót.  Að sjálfsögðu bjóðum við upp á getraunaseðla eins og venjulega og eru stórir pottar í boði.

    Jóla- og áramótaseðlarnir:
    22. desember kl. 14:00 Enski boltinn
    190 milljóna risapottur

    23. desember kl. 12:30 Sunnudagsseðill
    80 milljóna risapottur