Getraunaleikir » Fréttir

  • Unnu 1,5 milljónir í Getraunum
    Getrauna-fréttir

    Þrír Íslendingar voru með alla leikina rétta á enska getraunaseðlinum og unnu sér inn rúmlega 1,5 milljónir króna hver. Tveir af þremur vinningshöfum keyptu seðilinn góða í félagakerfi Getrauna en það er sölukerfi íþróttafélaga landsins, sá þriðji keypti seðilinn með snjalltæki. Vinningshafarnir styðja liðin Fjölni, ÍR og Sindra á Hornafirði og greiddu 810, 960 og 2430 krónur fyrir sína seðla en þegar tipparar merkja seðilinn með getraunanúmeri félags rennur hluti af upphæð seðilsins beint til þess íþróttafélagsins.

    Íslenskar Getraunir óska vinnningshöfum innilega til hamingju með vinninginn.

  • Víkingur með 13 rétta
    Getrauna-fréttir

    Stuðningsmaður Víkings var með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum í getraunum í gær og fær hann tæpa milljón krónur með aukavinningum í sinn hlut. Tipparinn notaði útgangskerfi 7-2-676 og festi jafntefli bæði í leik Real Sociedad - Barcelona og Arsenal - Crystal Palace sem gekk upp. 

  • Enski getraunaseðillinn - leikvika 1
    Getrauna-fréttir

    Athygli tippara er vakin á að leikur nr. 10 á getraunaseðlinum, Oldham - Bournemouth mun fara fram á heimavelli Bournemouth.  Leikurinn mun samt heita áfram Oldham - Bournemouth og ef Oldham vinnur fær leikurinn táknið 1 og ef Bournemouth vinnur fær leikurinn táknið 2. Leik Southampton - Shrewsbury hefur verið frestað og verður dregið um úrslit í þeim leik og eru 12 kúlur fyrir táknið 1, 2 kúlur fyrir táknið X og 2 kúlur fyrir táknið 2. 

  • Verðhækkun í Getraunum
    Getrauna-fréttir

    Frá og með deginum í dag hækkar verðið á hverri röð úr 15 í 16 krónur. Gengi íslensku krónunnar hefur gefið eftir gagnvart sænsku krónunni, Íslenskar getraunir hafa því ákveðið að hækka verð hverrar raðar úr 15 krónum í 16 krónur. Leitast er við að hafa verð á hverri röð sem næst verðgildi einnar sænskrar krónu, enda eru vinningar reiknaðir út miðað við verðgildi sænsku krónunnar vegna samstarfs Getrauna við sænsku getraunirnar.

  • Víkingar á flugi í getraunum
    Getrauna-fréttir

    Víkingar eru heitir í getraunum um þessar mundir og fengu 13 rétta á laugardaginn á Enska getraunaseðilinn og fengu rúmar 5 milljónir í sinn hlut.  Þetta er annar laugardagurinn í röð sem húskerfið hjá Víkingunum er að slá í gegn og fær 13 rétta en alls hefur kerfið skilað yfir 8 milljónum króna.

    Liverpool örlagavaldur
    Í bæði skiptin sem húskerfið fékk 13 rétta var Liverpool að leika síðasta leikinn á Getraunaseðlinum og varð Liverpool að vinna til að kerfið gengi upp. Í báðum tilfellum lenti Liverpool undir í leiknum og í báðum tilfellum var mark dæmt af Liverpool með VAR tækninni. Það tók því á taugarnar að fylgjast með Liverpool undanfarnar tvær vikur.

    Undir regnboganum
    Sagt er að þeir sem komist undir enda regnbogans finni þar kistu fulla af gulli. Þessi mynd var tekin af einum af hluthöfum í húskerfinu á laugardaginn og sýnir Víkina undir enda regnbogans. Taldi hlutahafinn þá víst að 13 réttir kæmu í Víkina.

    Víkin undir regnboga
     

  • Húskerfið hjá Víkingum slær í gegn
    Getrauna-fréttir

    Þrír tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum á laugardaginn og fær hver í sinn hlut um 3,5 milljónir króna. Þar á meðal var húskerfi Víkinga en Víkingar hafa verið öflugir í getraunastarfinu. Á laugardögum er safnað saman í húskerfi og tippað á Enska getraunaseðilinn. Húskerfið er þannig uppbyggt að allir þeir sem vilja vera með geta sett upphæð að eigin vali í pottinn. Getraunanefnd Víkings sér svo um að tippa á Enska getraunaseðilinn fyrir upphæðina sem safnast. Hver og einn tippari fær svo vinning í réttu hlutfalli við upphæðina sem hann lagði inn í pottinn. Húskerfið hefur verið í gangi í fimm vikur og hefur skilað tippurum ágætis hagnað sem og Víkingum um 500.000 krónur í áheit og sölulaun frá Getraunum, eingöngu vegna húskerfisins.

  • Vinningshafinn kominn í leitirnar
    Getrauna-fréttir

    Það var heldur betur gáttaður vinningshafi sem mætti í Laugardalinn með miðann sinn úr sunnudagsseðli Getrauna en miðinn færði honum vinning upp á tæpar 62 skattfrjálsar milljónir króna. Er það  stærsti vinningur í getraunum sem komið hefur til Íslands. Vinningshafinn tekur þátt í getraunum í hverri viku, velur táknin venjulega sjálfur með misjöfnum árangri, og styrkir í leiðinni sitt íþróttafélag. Í þetta skiptið leist honum ekkert á seðilinn og ákvað því að taka sjálfval með þessum stórkostlega árangri.

    Svo vildi til að vinningshafinn var staddur í laxveiði og hafði brugðið sér á klósettið. Hann var inni á klósettinu með símann og miðann góða og datt í hug að kanna úrslit helgarinnar. Þar komst hann að því að hann var einn með 13 rétta og hafði hirt allan pottinn. Það var víst lítið veitt næstu daga.

    Íslenskar Getraunir óska vinningshafanum innilega til hamingju með vinninginn.

  • Vann 62 milljónir í Getraunum með sjálfvali
    Getrauna-fréttir

    Íslendingur vann tæplega 62 milljónir í getraunum í gærkvöldi og er þetta stærsti vinningur sem Íslendingur hefur unnið í getraunum. Mikið var um óvænt úrslit á sunnudags seðli getrauna og var Íslendingurinn sá eini í heiminum sem var með alla leikina 13 rétta en miðinn var keyptur í sölukassa með sjálfvali. Fyrir 13 rétta voru 52 milljónir í vinning en miðahafinn var einnig með fjölda auka vinninga sem færir honum tæplega 62 skattfrjálsar milljónir. Eigandi miðans hefur ekki ennþá gefið sig fram með miðann góða og hvetjum við því alla sem keyptu miða til að skoða hann vel.

  • Með 13 rétta og vann 8,6 milljónir
    Getrauna-fréttir

    Einn glúrinn tippari var með alla leikina í getraunum rétta á laugardaginn og fær í sinn hlut tæplega 8,6 milljónir króna. Tipparinn þrítryggði 4 leiki af 13, tvítryggði 2 leiki og var með sjö leiki með einu merki. Alls kostaði getraunaseðillinn 4.860 krónur. Tipparinn styður Ögra, íþróttafélag heyrnalausra. Þess má geta að næsta laugardag verður risapottur í getraunum og vinningurinn fyrir 13 rétta verður 200 milljónir króna.

  • Verðhækkun í Getraunum
    Getrauna-fréttir

    Gengi íslensku krónunnar hefur gefið eftir gagnvart sænsku krónunni og er nú um stundir 15,68. Íslenskar getraunir hafa því ákveðið að hækka verð hverrar raðar úr 14 krónum í 15 krónur. Leitast er við að hafa verð á hverri röð sem næst verðgildi einnar sænskrar krónu, enda eru vinningar reiknaðir út miðað við verðgildi sænsku krónunnar vegna samstarfs Getrauna við sænsku getraunirnar.