Getraunaleikir » Uppsetning fyrir iPhone

Uppsetning fyrir iPhone

1. Sæktu appið

Þú finnur appið í App Store. Sláðu inn leitarorðið „Getraunir“ og þá ætti appið að birtast efst í niðurstöðunum. Þú getur einnig smellt á viðeigandi hlekk hér að neðan.

Sækja app fyrir IOS

2. Uppsetning

Þegar þú hefur fundið appið velur þú „Get“, auðkennir þig með lykilorði eða fingrafari. Þá hleðst appið niður á símann þinn og það er sett sjálfkrafa upp. Þá birtist tákn með merki Getrauna á skjáborðinu sem þú smellir á til að opna appið.

3. Skráðu þig inn

Appið býður upp á fljótlegar og þægilegar innskráningarleiðir með fingrafari eða andlitsgreiningu (iPhone X).

Til að leyfa innskráningu með þessum auðkenningarleiðum þarft þú fyrst að auðkenna þig með notandanafni og lykilorði eða með rafrænum skilríkjum.

Athugaðu að allir sem hafa aðgang að tækinu þínu með fingrafari hafa aðgang að appinu veljir þú að veita þennan aðgang.

Nýir viðskiptavinir geta stofnað aðgang í appinu og komið í viðskipti við Getraunir á örfáum mínútum.

Ef þú finnur ekki Getrauna appið í AppStore

Apple hefur sérstakar reglur varðandi öpp sem heyra undir „gambling“. Þeir leyfa því Getrauna appið aðeins í íslenska AppStore.

Ástæðan gæti því verið að þú sért ekki skráður með íslenskt Apple ID. Til að geta sótt appið gætir þú þurft að breyta um land í þínu Apple ID. Hér að neðan er hlekkur í leiðbeiningar um hvernig þú getur breytt þínu Apple ID í íslenskt.

Breyta landi í Apple ID