Um okkur » Tveir tipparar með 3 milljónir fyrir 13 rétta

Til baka í listaTveir tipparar með 3 milljónir fyrir 13 rétta
Getrauna-fréttir

Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag. Fá þeir hvor um sig rúmar 3 milljónir króna í sinn hlut.  Annar tipparinn tippaði á seðil með átta tvítryggðum leikjum og hafði fmm leiki með einu merki og keypti miðann í Lengju appinu.  Hinn tipparinn vann á kerfisseðil sem keyptur var í félagakerfi Íslenskra getrauna hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík.  Vinningshafarnir styðja annarsvegar Víking og hinsvegar Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík.