Um okkur » Úrslit í EuroJackpot 28.apríl 2023
Til baka í listaÚrslit í EuroJackpot 28.apríl 2023
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en fimm heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra tæpar 47 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir á Spáni, tveir í Þýskalandi og einn í Ungverjalandi. Fjórir miðahafar voru með 3. vinning og fá fyrir það 33 milljónir hver, þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Ungverjalandi.
Einn stálheppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Jolla, Helluhrauni 1 Hafnarfirði. Þá voru þrír með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í vasann, tveir miðanna eru í áskrift og einn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is.