Um okkur » EuroJackpot - enginn með 1. vinning
Til baka í listaEuroJackpot - enginn með 1. vinning
EuroJackpot-fréttir
Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins, en tveir heppnir miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 90,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku og Finnlandi. Þá skiptu einnig tveir með sér 3. vinningi og hlýtur hvor þeirra rúmlega 51,2 milljón króna. Miðarnir voru keyptir í Póllandi og Þýskalandi .
Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en einn var þó með heppnina með sér varðandi 2. vinning og fær sá sami 100 þúsund krónur. Miðaeigandinn er í áskrift.