Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot að þessu sinni en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 62 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Póllandi, Finnlandi og tveir í Króatíu. Þá voru tólf með 3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 14,6 milljónir króna. Fimm miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir á Spáni og tveir í Danmörku. Hinir miðarnir voru keyptir í Hollandi, Noregi og Ítalíu.
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Jókernum.
Fréttir
eurojackpot
EuroJackpot - úrslit 12. maí
12. May 2026, 20:39