Einn heppinn Svíi var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 2,6 milljarða í vinning. Enginn var með 2. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru sjö með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir í vinning. Miðarnir sjö voru keyptir í Þýskalandi. Þá var einn Íslendingur með 4. vinning og hlýtur rúmar 840 þúsund krónur í vinning, miðinn er í áskrift.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en tveir voru með 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var keyptur í appinu og hinn er í áskrift.