Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Vikinglottó útdrætti kvöldsins en tveir heppnir miðahafar voru með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hvor þeirra rúmar 810.000 þúsund krónur i sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu og lottó appinu.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 100.000 krónur hvor í vinning. Annar miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is en hinn miðinn er í áskrift.