Fyrsti vinningur gekk ekki út í Vikinglotto að þessu sinni en miðaeigandi í Noregi var einn með 2. vinning og fær hann rúmar 16,4 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann fyrir það rúmlega 2 milljónir króna. Miðinn er í áskrift.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en sjö voru með 2. vinninginn og fá 125 þúsund krónur hver. Þrír miðar voru keyptir á lotto.is, tveir í appinu og tveir eru í áskrift.
Fréttir
vikinglotto
Úrslit í Vikinglotto 4. nóvember
4. Nov 2026, 19:16