Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í útdrætti kvöldsins í Vikinglottó en einn miðahafi var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann tæpar 1,8 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.
Heppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hann 2,5 milljónir króna í vasann. Vinningsmiðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá var einn miðahafi með 2. vinning og hlýtur hann 125.000 krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.