Heppinn Vikinglottó spilari var einn með 1. vinning í kvöld og fær hann fyrir það rúmar 798 milljónir króna. Sá heppni er frá Noregi. Þá voru tveir aðrir Norðmenn með heppnina með sér og fá þeir rúmar 17,4 milljónir hvor.
Einn heppinn íslenskur miðaeigandi var með 4. vinning sem færir honum rúmar 400 þúsund krónur. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en þrír voru með 2. vinning sem færir þeim 100 þúsund krónur. Tveir miðar voru keyptir á lotto.is og einn er í áskrift.