Enginn var með 1. vinning í Vikinglottó kvöldsins en einn heppinn Norðmaður var með 2. vinning og fær hann óskiptar 552,5 milljónir króna.
Þá skiptu tveir miðahafar með sér hinum al-íslenska 3. vinning og hlýtur hvor þeirra rúmar 2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir á vefnum okkar lotto.is og í Lottó appinu.
Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá fyrir það 125 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir á vefnum okkar lotto.is og í Lottó appinu.