Fréttir

eurojackpot

Vann 37 milljónir á Þjóðhátíð í Eyjum

15. Aug 2024, 11:16

Stálheppinn gestur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var á leið í Herjólfsdal þegar hann ákvað að kaupa 10 raða miða í Eurojackpot með Lottó appinu. Hinn heppni gestur valdi 10 raðir í sjálfval en eyddi síðustu röðinni og valdi afmælisdaga fjölskyldunnar sem síðustu röðina. Hann sagði svo í gríni við vini sína að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af kostnaðinum um helgina, hann myndi borga með Eurojackpot vinningnum.

Skemmti hann sér svo vel um helgina og pældi ekkert meira í miðanum sínum fyrr en hann fékk símtal eftir helgina frá starfsmanni Getspár. Var hann þá staddur í vinnu sinni, frekar þreyttur eftir helgina og hélt í fyrstu að vinir sínir væru að gera símahrekk. Símtalið var þó enginn hrekkur því þessi ungi karlmaður hafði unnið tæpar 37 milljónir í þriðja vinning í Eurojackpot og var það síðasta röðin, með afmælsidögum fjölskyldunnar, sem skilaði honum vinningnum góða.

Hinn heppni ætlar að nýta vinninginn til að kaupa sína fyrstu íbúð en hann býr hjá foreldrum sínum og hefur verið að skoða sig um á fasteignamarkaðnum. Öllum vinningshöfum hjá Getspá býðst fjármálaráðgjöf frá utanaðkomandi sérfræðingum og ætlar vinningshafinn að nýta sér hana.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 23. október - Íslendingur með 3. vinning!

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en einn miðahafi í Finnlandi var með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 424,4 milljónir króna. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 18,8 milljónir króna í sinn hlut. Einn af þeim er heppinn áskrifandi á Íslandi, aðrir vinningsmiðar voru keyptir í Sló... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 20. október

Einn heppinn Svíi var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 2,6 milljarða í vinning.  Enginn var með 2. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru sjö með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir  í vinning. Miðarnir sjö voru keyptir í Þýskalandi. Þá var einn Íslendingur með 4. vinning og hlýtur rú... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 16. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins, en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 64.2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Hollandi, Spáni og Svíþjóð. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 20 milljónir króna. Fjórir m... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 13. október

Einn stálheppinn Þjóðverji var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 16,2 milljarða króna í vinning. Þá voru sjö með 2. vinning og fær hver þeirra 404 milljónir króna. Tveir miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, einn í Danmörku, einn í Noregi, einn í Svíþjóð,  einn í Póllandi og einn í Finnlandi. Fimmtá... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 9. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins, en 2 miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hvor þeirra tæpa 1,6 milljarða. Miðinn var keyptur í Þýskalandi og hinn í Finnlandi. Þá voru 12 miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 24 milljónir. Þrír miðana voru keyptir í Þýskal... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir