Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Vikinglotto en Norðmaður og Dani skiptu 2. vinningi á milli sín og fá þeir rúmar 26 milljónir króna hvor. Einn miðaeigandi var með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur hann rétt tæpa 1,6 milljón króna. Miðinn er í áskrift.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en einn var með 2. vinning í Jóker og fær hann 125 þúsund krónur í vasann, miðinn var keyptur í Appinu.