Enginn af þremur hæstu vinningsflokkunum gengu út í útdrætti vikunnar og verður því til verulega mikils að vinna í næstu viku.
Fjórir skiptu með sér íslenskum 4. vinningi og fær hver um sig rúmlega 101 þúsund kall, tveir miðanna eru í áskrift og tveir voru keyptir í lottóappinu.
Af Jóker er það að segja að enginn var með 1. vinning en þrír nældu sér í 2. vinning sem er upp á 100 þúsund krónur, voru miðarnir keyptir á eftirtöldum stöðum; Hagkaup á Akureyri, Krambúðinni við Hjarðarhaga í Reykjavík og einn miðinn er í áskrift.