Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna en einn var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rúmlega 3,3 milljónir í sinn hlut, miðinn er í áskrift. Fjórir skiptu með sér 4. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 100 þúsund krónur.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en fimm miðahafar voru með 2. vinning sem nemur 100 þúsund krónum, tveir miðanna voru keyptir á heimasíðunni okkar lotto.is en þrír eru í áskrift.