Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni en einn heppinn miðahafi var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rúmar 8,9 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Hagkaupi, Furuvöllum 17 Akureyri.
Enginn var með 1. vinning í Jókernum en fimm voru með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Tveir miðanna voru keyptir á lotto.is, tveir í lotto-appinu en sá fimmti er í áskrift.