Fréttir

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur

22. Mar 2025, 23:56

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 23. mars til klukkan 18:40 þann 19. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 19. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.

Leikurinn hefst sunnudaginn 23. mars

Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.

Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 19. apríl 2026.

Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.

Dregið verður 19. apríl 2025.

Athugið:

  • Lukkunúmerin gilda aðeins 19. apríl 2025.

  • Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.

  • Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 23. mars) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.

  • Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.

  • Vinningsnúmer eru birt á lotto.is

  • Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 19. mars 2026.

Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.

* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum. Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (28. mars, 4. 11. og 18. apríl) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (29. mars, 5. 12. og 19. apríl) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (26. mars, 2. 9. og 16. apríl).

vikinglotto

Úrslit í Vikinglotto 21. október

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar skiptu með sér hinum al-íslenska 3. vinning og fá þeir 854 þúsund krónur í vinning hvor. Annar miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni og hinn miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is. Enginn var með allar tölur réttar og... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 20. október

Einn heppinn Svíi var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 2,6 milljarða í vinning.  Enginn var með 2. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru sjö með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir  í vinning. Miðarnir sjö voru keyptir í Þýskalandi. Þá var einn Íslendingur með 4. vinning og hlýtur rú... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 16. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins, en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 64.2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Hollandi, Spáni og Svíþjóð. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 20 milljónir króna. Fjórir m... Lesa meira

vikinglotto

Úrslit - Vikinglotto 14. október

Enginn var með 1. vinning í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmar 7.8 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Litháen og Noregi. Tveir heppnir miðahafar voru með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hvor þeirra rúmar 1.8 milljón króna í vinning. Einn miðinn... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir