Hvorki 1. né 3. vinningur gengu út þessa vikuna, en tveir Norðmenn skiptu 2. vinningi á milli sín og fær hvor rúmlega 8,2 milljónir króna í sinn hlut.
Enginn var með 1. vinning í Jókernum en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Prins Póló, Þönglabakka 6 í Reykjavík, Lottó appinu, á lotto.is og einn er í áskrift.