Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR hafi verið sigursælt um helgina. Þriðji seðillinn var keyptur í 10-11 á Laugarvegi.
Úrslitin á sérstökum HM seðli í getraunum vöfðust ekki fyrir tippurum og voru 32 Íslendingar með 13 rétta og alls voru 3.894 tipparar með 13 rétta þegar sænskir og suður afrískir tipparar eru taldir með. Vinningurinn var þess vegna ekki hár eða rúmar 16 þúsund krónur.