Norðmenn voru heppnastir allra í útdrætti vikunnar en þeir nældu sér bæði í 1. og 2. vinning, óskipta. Upphæð 1. vinnings nam rúmlega 628,6 milljónum króna og upphæð 2. vinnings rúmlega 53,6 milljónum. Hins vegar gekk hinn al-íslenski 3. vinningur út í þetta skiptið.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en þrír fengu 2. vinning sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, einn miðinn var keyptur á lotto.is, einn í appinu og sá þriðji er í áskrift.
Fjöldi vinningshafa á Íslandi var 4,680