Hvorki 1. né 3. vinningur gengu út að þessu sinni en tveir skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmlega 20,3 milljónir. Miðarnir voru báðir keyptir í Noregi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en fimm miðahafar voru með 2. vinning sem er upp á 100 þúsund krónur, miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; Kúlunni við Réttarholtsveg í Reykjavík, Sbarro á Akranesi, tveir eru í áskrift og einn var keyptur í appinu.