Tveir skiptu með sér hinum al-íslenska 3. vinningi og fær hvor um sig rétt um 930 þúsund, annar miðinn var keyptur í Olís á Selfossi en hinn er í áskrift. Það voru einnig tveir með 4. vinning sem gaf þeim rúmlega 230 þúsund í aðra hönd, voru báðir miðarnir keyptir á lotto.is. Hins vegar gengu hvorki 1. né 2. vinningur út að þessu sinni.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en þrír fengu 2. vinning sem er 125 þúsund, einn miðinn var keyptur á lotto.is, einn í appinu og einn miðinn er í áskrift.