Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en þrír heppnir miðahafar í Þýskalandi voru með 2. vinning og fær hver þeirra rétt rúmar 92,8 milljónir króna. Þá voru ellefu miðahafar með þriðja vinning og fær hver vinningshafi tæpar 14,3 milljónir króna í sinn hlut. Sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi, þrír í Finnlandi og einn í Noregi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 100.000 krónur í vinning. Miðinn var keyptur á N1 við Gagnveg í Reykjavík.