Fyrsti vinningur gekk ekki út, en heppinn Norðmaður var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 88 milljónir króna í vinning. Einn var með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur hann rúmar 3,3 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Reykjavík food, Suðurfelli 4, Reykjavík.
Fimm miðahafar voru með 2. vinning í Jókernum og fær hver þeirra 100.000 krónur í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir á Lotto-appinu og tveir eru í áskrift og einn hjá Jolla, Helluhrauni 1, Hafnarfirði.