Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins í Vikinglottó en heppinn miðahafi í Noregi var með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 17,2 milljónir króna í vinning. Einn miðahafi var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rúmar 3,3 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vef okkar, lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 á Bíldshöfða, N1 á Lækjartorgi, tveir miðar á vef okkar lotto.is og einn miðanna er í áskrift.