Enginn náði að landa 1. vinningi þessa vikuna en einn var með 2. vinning og var sá miði keyptur í Noregi, færir hann eiganda sínum rúmlega 44 milljónir króna. Einn var með hinn al-íslenska 3. vinning sem var að þessu sinni upp á 1,780 þúsund krónur og sá keypti miðann sinn í N1 við Stórahjalla 2 í Kópavogi. Þá voru fjórir með 4. vinning og fær hver þeirra rúmlega 111 þúsund kall í vasann.
Fimm miðahafar nældu sér í 2. vinning í Jóker sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, fjórir eru með miðann sinn í áskrift en einn miðinn var keyptur í Hagkaup við Litlatún í Garðabæ. Hins vegar gekk 1. vinningur ekki út að þessu sinni.