Enginn tók 1. vinning í Vikinglottó útdrætti kvöldsins en einn Norðmaður nældi sér í 2. vinning sem veitir honum rúmar 19,3 milljónir króna.
Hin al-íslenski 3. vinningur gekk út og færir hann miðahafanum rúma 1,8 milljón króna. Miðinn var keyptur í Lottó appinu.
Jókerinn gekk ekki út að þessu sinni en fjórir miðaeigendur voru með 2. vinning sem veitir þeim 100 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur á Olís Selfossi og tveir miðar í lottó appinu, fjórði miðinn er í áskrift.